Guðsþjónusta verður í Víðistaðakirkju kl. 11.
Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir þjónar fyrir altari og Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í höndum Maríu og Sigga.
Verið hjartanlega velkomin.
Nemendur úr Skólahljómsveit Víðistaðaskóla leika á hljóðfæri undir stjórn Vigdísar Klöru Aradóttur. Ólafur Stefánsson handboltahetja kemur í heimsókn og spjallar um “leikinn”. Organisti er Helga Þórdís og sr. Halldór Reynisson leiðir stundina ásamt Maríu Gunnarsdóttur úr sunnudagaskólastarfinu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kaffi og djús í boði á eftir.
Sunnudagaskóli og guðsþjónusta kl. 11.
Siggi og Hafdís sjá um sunnudagaskólann og María Gunnarsdóttir guðfræðingur leiðir guðsþjónustuna.
Félagar úr Kór Víðistaðakirkju syngja undir stjórn Helgu Þórdísar organista.
Molasopi á eftir.
Æfingar hjà Barnakór Víðistaðakirkju hefjast í næstu viku, þriðjudaginn 20. Janúar.