Kyrrðarbæn
Kyrrðarbænastundir eru í kirkjunni á fimmtudögum kl. 17:30. Um er að ræða samstarfsverkefni Víðistaðakirkju og Hafnarfjarðarkirkju. Umsjón hafa Bergþóra Baldursdóttir, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sr. Jónína Ólafsdóttir og Jón Snorrason.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur.
Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Verið hjartanlega velkomin á kyrrðarbænastundir, samfélag um bæn og íhugun.