Víðistaðakirkja-pano

Messuhópar

Messuhópar

Í Víðistaðakirkju er boðið upp á skemmtilegt og gefandi starf fyrir sjálfboðaliða sem sinna þjónustu við helgihald kirkjunnar. Nú eru starfandi 12 sjálfboðaliðar, fólk á öllum aldri, í s.k. messuhópum auk fermingarbarna sem einnig taka þátt.

Hver hópur mætir að jafnaði í fimmtu hverja messu og sjá messuþjónarnir um ákveðna þætti hennar. Þannig taka þeir á móti safnaðarfólki við kirkjudyr, afhenda sálmabækur og messuskrá og leiðbeina fólki ef á þarf að halda. Messuþjónarnir lesa ritningarlestra messunnar, taka þátt í að biðja kirkjubænina og aðstoða við útdeilingu sakramentisins. Þeir eru til taks fyrir prest og kirkjuvörð ef  á þarf að halda, hella upp á kirkjukaffi og hjálpa til við að ganga frá eftir messuna. Messuþjónunum standa líka til boða ýmis námskeið og fræðsla um trú og kirkjustarf.

Starf messuþjóna í Víðistaðakirkju er tilboð til þeirra sóknarbarna sem vilja virka þátttöku í starfi hennar á sínum forsendum. Velkomin/n í hópinn!

Hægt er að skrá sig hjá séra Braga 565-2050 / 894 7173 / srbragi@vidistadakirkja.is eða rafrænt með því fylla út skráningarformið hér fyrir neðan: