Víðistaðakirkja-pano

Kyrrðarstundir

Kyrrðar- og fyrirbænastundir eru á hverjum miðvikudegi í hádeginu yfir vetrartímann.  Kyrrðarstund hefst kl. 12:10 og er lokið fyrir kl. 12:30 en þá er boðið upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu.

Í þessum hádegisstundum er blandað saman töluðu orði og tónum, þar sem sérstök áhersla er lögð á mjúka og róandi tónlist. Þá eru fluttar fyrirbænir og getur fólk komið fyrirbænaefnum til sóknarprests eða skráð rafrænt með því að fylla út skráningaformið neðst á síðunni.

Kyrrðar- og fyrirbænastundirnar eru því góður kostur fyrir alla þá sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í erli og amstri hversdagsins til að öðlast ró í huga og frið í hjarta.

Skráning fyrirbænaefna: