Fjölskylduhátíð kl. 11:00
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór kemur í heimsókn og syngur með Barnakór kirkjunnar undir stjórn Helgu Þórdísar organista. Umsjón hafa sr. Bragi og María. Hressing í safnaðarsalnum eftir stundina.
Söfnunarbaukur verður á staðnum og rennur allt söfnunarfé í það verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar að reisa hús fyrir munaðarlaus börn í Úganda.