Lögð er áhersla á að hafa fermingarstarfið lifandi, skemmtilegt og fræðanda. Markmiðið er að fermingarbörnin fái að kynnist starfi kirkjunnar, taki þátt og njóti þess að upplifa stemninguna sem þar ríkir, auk þess að fræðast um grundvallaratriði kristinnar trúar.
Ýmsir gestir koma og taka þátt í fræðslunni – svo hún verði fjölbreytt og nái til allra. Fermingarbörnin taka m.a. þátt í hjálparstarfi og messuþjónustu.
Farið verður í sólarhringsferð í Vatnaskóg. Þar er gaman að dvelja við skemmtileg verkefni í góðum hópi.
Fræðslugögn:
Biblían, Con Dios, Kirkjulykill. Notuð er kennslubókin Con Dios sem gefin var út af Skálholtsútgáfunni 2013. Þá bók þurfa börnin að eignast og verður hún til sölu hér í kirkjunni á kr. 2.500,-. Greiða þarf fyrir bókina með reiðufé því enginn posi er í kirkjunni. Bókin fæst einnig í ýmsum bókaverslunum. Kirkjan leggur til Biblíur til notkunar við fræðsluna.
Þá fá börnin afhenta bókina Kirkjulykil endurgjaldslaust. Kirkjulykillinn er notaður aðallega í tengslum við mætingar í messur sem er hluti fermingarundirbúningsins. Ætlast er til að þau mæti í a.m.k. 8 guðsþjónustur fram að fermingu, taki þá bókina með, skrifi inn í bókina og fái stimpil fyrir hverja mætingu á þar til gerðar síður. Þátttaka í s.k. messuhópum er einnig liður í fermingarstarfinu sem verður kynntur á námskeiðinu. Gefur aukastimpil!