Hulda Björk á hádegistónleikum

Á hádegistónleikum næsta föstudag 22. febrúar kl. 12:00 mun Hulda Björk Garðarsdóttir sópransöngkona flytja fjölbreytt úrval sönglaga frá Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Meðleikari hennar er Árni Heiðar Karlsson organisti kirkjunnar. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1.500,-. Boðið verður upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu eftir tónleika.

Hulda Björk Garðarsdóttir hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu á íslandi í á annan áratug. Hún nam við  Tónlistarskólann í Eyjarfirði, Söngskólann í Reykjavík, Hochschule der Künste í Berlín og lauk síðan námi sínu frá The Royal Academy of Music í London.

Hún hefur komið víða fram á tónleikum erlendis, verið gestasöngvari við óperuhús svo sem Norsku Óperuna í Osló, Malmö óperuna í Svíþjóð og Garsington í Englandi. Hún hefur haldið einsöngstónleika víða um landið, sungið ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og komið fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, nú síðast sem einsöngvari á árlegum Vínartónleikum þeirra nú í janúar.

Hulda Björk hefur sungið fjölda burðarhlutverka við Íslensku Óperuna. Á liðnu ári söng hún hlutverk Leonóru í Il Trovatore, einnig hlutverk Mimíar í La Bohéme og er nú tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir þau hlutverk.

Comments are closed.