Kirkjukór Víðistaðasóknar tekur þátt í fjölbreyttu söngstarfi kirkjunnar, aðallega í reglulegu helgihaldi en jafnframt öðrum tónlistarflutningi í kirkjunni sem og annars staðar.
Í Guðsþjónustum syngur kórinn hefðbundna sálmatónlist en hefur einnig í auknum mæli verið að æfa og flytja léttari söngva sem fallið hafa í góðan jarðveg meðal kirkjugesta. Hvað varðar önnur verkefni, má t.d. nefna tónleika eða þegar farið er í messu- og söngferðir.
Stjórnandi kórsins er Sveinn Arnar Sæmundsson og eru æfingar vikulega á þriðjudagskvöldum kl. 19:30.