Leiguskilmálar
Leiguskilmálar
Kirkjuvörður heldur utan um bókanir á kirkju og safnaðarsal.
- Leiga á kirkju:
- Meginreglan skal vera að leigutaki greiði fullt gjald 50.000,- fyrir viðburði/tónleika í kirkjunni, a.m.k. ef selt er inn. Sé um upptökur að ræða er greitt kr. 4.500,- pr. klst.
- Hægt er að semja við leigutaka um að greiða hluta/alla leiguna með tónlistar-flutningi við helgihald í kirkjunni. Það verði þá gert í samráði við organista og sóknarprest.
- Sérstakar beiðnir um niðurfellingu leigugjalds, t.d. vegna styrktartónleika þar sem ágóði rennur ótvírætt til góðra málefna og vegna skóla eða ungmennastarfs, skulu skoðaðar í hverju tilviki fyrir sig.
- Ef ákveðið er að fella niður leigu af fyrrgreindum ástæðum eða öðrum, þá nær það ekki yfir greiðslu til kirkjuvarðar. Alltaf skal greitt lágmarksgjald kr. 15.000,-.
- Leigutaki skal greiða leigu fyrirfram inn á reikning Víðistaðakirkju með skýringu „Leiga”
- Reikningur 0544-26-004004, kt. 620677-0199
- Kirkjuvörður gerir reikning fyrir útleigu á Víðistaðakirkju.
- Greiðsla staðfestir samþykki leigutaka á leiguskilyrðum sem lýst er hér að neðan.
- Leigutaki ber ábyrgð á að framkvæmd þeirra atburða sem fram fara í kirkju séu í samræmi við þær reglur sem tilgreindar eru í leiguskilyrðum.
- Leiga á safnaðarsal:
- Leiga á kirkju og sal er aðskilin. Ef kirkjan er leigð fylgja ekki afnot af safnaðarheimili nema greidd sé leiga fyrir það sérstaklega.
- Meginreglan skal vera að leigutaki greiði fullt gjald 60.000,- fyrir notkun á safnaðarsal.
- Ef dúkar eru notaðir greiðir leigutaki kr. 25.000,- til viðbótar.
- Fyrir félagsfundi án afnota af eldhúsi, er salarleiga 10.000,- kr. á klst.
- Leigutaki skal greiða leigu fyrirfram inn á reikning Víðistaðakirkju með skýringu „Leiga”.
- Reikningur 0544-26004004, kt. 620677-0199
- Kirkjuvörður gerir reikning fyrir útleigu á safnaðarheimili.
- Greiðsla staðfestir samþykki leigutaka á leiguskilyrðum sem lýst er hér að neðan.
- Öllum útleigum fylgir starfsmaður, umsjónaraðili safnaðarheimilis (verktaki), sem hefur umsjón með eldhúsi og öðrum hlutum sem snúa að salnum. Fyrir þá þjónustu greiðir leigutaki tímagjald. Ef gestir eru fleiri en 50 skulu vera tveir starfsmenn í sal.
- Leiguskilyrði:
- Leigutaki ber ábyrgð á að framkvæmd þeirra atburða sem fram fara í safnaðarheimilinu séu í samræmi við þær reglur sem tilgreindar eru hér að neðan.
- Leigutaki tekur salinn á leigu eins og hann er, með þeim fjölda borða og stóla sem þar eru og þeim myndum sem á veggjunum hanga. Hann má breyta uppröðun borða og stóla en fjarlægir ekki úr sal nema í samráði við umsjónaraðila/starfsmann kirkjunnar.
- Þegar salur er leigður út fyrir kvöldveislur skal veislu ljúka eigi síðar en á miðnætti. Einungis er leyfð hófleg neysla léttra áfengra drykkja.
- Leigutaka skal gerð grein fyrir því að helgi kirkjunnar gerir kröfur til virðingar í allri umgengni, ekki síst í helgasta rými hennar í kór og við altari.
- Leigutaka skal gerð grein fyrir því að hann hafi ekki leyfi til að aðhafast nokkuð með eldhústæki, borðbúnað, muni, stóla, hljóðfæri, hljóðkerfi eða annað í safnaðarheimili og/eða kirkju nema í samráði við umsjónaraðila/kirkjuvörð.
- Í þeim tilvikum sem við á skal leigutaki ekki hafa afnot af hljóðfærum kirkjunnar nema í samráði við organista. Þegar um er að ræða rafræna tónleika er aðgangur að flygli ekki leyfður.
- Leigutaki skal beðinn að hafa í huga að það sem fara muni fram á hans vegum í kirkjunni, tónlist eða annað, skuli vera við hæfi.