SameiginlegGuðsþjónusta.2026.kropp

Messuheimsókn í Vídalínskirkju

Sameiginleg guðsþjónusta Víðistaðakirkju og Vídalínskirkju fyrir eldri borgara í söfnuðunum verður í Vídalínskirkju sunnudaginn 11. janúar kl. 14:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og prestarnir sr. Sigurður Kr. Sigurðsson og sr. Benedikt Sigurðsson þjóna fyrir altari.

Veitingar og skemmtidagskrá í boði Vídalínskirkju að messu lokinni.

Verið velkomin!

Comments are closed.