Hátíðarmessa í tilefni 30 ára vígsluafmælis kirkjunnar kl. 11:00
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur, sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Veislukaffi í safnaðarsalnum að guðsþjónustu lokinni. Verið velkomin.
Sunnudagaskóli kl. 11:00
Fjölbreytt og skemmtileg stund í hátíðlega skreyttum sal í tilefni afmælis kirkjunnar. Umsjón hafa María og Bryndís. Veislukaffi í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!