Guðsþjónusta á Alrra heilagra messu sunnudaginn 1. nóvember kl. 11:00. Látinna minnst. Kór Víðistaðasóknar syngur ásamt Ástu Sigríðar Arnardóttur söngkonu undir stjórn Sveins Arnars organista. Sr. Bragi Jóhann þjónar fyrir altari.
Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma uppi í Suðursal – í umsjón Svanhildar Helgadóttur.
Eftir guðsþjónustu eru veitingar í safnaðarhemilinu og þar fer einnig fram opnun listasýningar sem félagar úr Kór Víðistaðasóknar standa að en það eru þær Ásta Júlía Hreinsdóttur, Edda Svavarsdóttir, Katrín Ingibergsdóttir og Steingerður Jóhannsdóttir.

Add a Comment
You must be logged in to post a comment