Kyrrðarbænasamtökin

Kyrrðardagur

Kyrrðardagur í Víðistaðakirkju laugardaginn 31. okt. kl. 10:00 – 16:00. Þetta er kærkomin stund í þögn, í endurnæringu, að líta inn á við og til hins æðra. Samveran hefst með kynningu og tvöfaldri 20 mín kyrrðarbæn með gönguíhugun á milli. Það verður léttur hádegisverður, biblíuleg- og sjónræn íhugun á freskum í kirkjunni, djúpslökun, og frjáls hvíldartími. Það er gott að hafa með sér dýnu og teppi fyrir djúpslökunina, hlýja peysu og útivistarföt, bók eða íhugunarefni, einnig verður lesefni til að glugga í á staðnum.

Gengið er inn í þögnina að kynningu lokinni og hún rofin undir lok samveru þar sem gefst færi á samtali. Umsjón hafa Bergþóra Baldursdóttir, Bára Friðriksdóttir og Ingunn Björnsdóttir en þær hafa allar kennsluréttindi í kyrrðarbæn.

Verð er 5.000 krónur og er hádegisverður innifalinn. Lagt er inn á 0114-26-001513 kt. 450613-1500.

Skráning hér: Skráning á kyrrðardag

Add a Comment

You must be logged in to post a comment