Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. 25/05/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Sl. 37.5
Ef við lifum, lifum við Drottni, ef við deyjum, deyjum við Drottni. Hvort sem við þess vegna lifum eða deyjum þá erum við Drottins. 18/05/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Róm. 14.8
Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“ 11/05/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Jóh. 11.25-26
Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú. 04/05/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Fil. 4.6-7
Þú ert skjól mitt, verndar mig í þrengingum, bjargar mér, umlykur mig fögnuði. 27/04/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Sl. 32.7
Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. 20/04/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Fil. 2.3-5
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu. 13/04/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Sl. 119.9
Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki. 06/04/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Kól. 3.16a
Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla. 30/03/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Matt. 20.28
Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt að hann geti ekki hjálpað og eyra hans ekki svo dauft að hann heyri ekki. 23/03/2020 by Bragi Ingibergsson Ritningarorð dagsins Jes. 59.1