Mottumessa

Mottumessa 19. mars

Mottumessa kl. 17:00 sunnudaginn 19. mars. Karlakórinn Þrestir syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Ásgeir R. Helgason sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu flytur erindi og Ómar Ívarsson geðlæknir segir frá reynslu sinni af því að greinast með krabbamein. Sr. Bragi þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffihressing í safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustu.

Verið velkomin!

Karlakórinn Þrestir
Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.
sqcomnewL

Sunnudagurinn 12. mars

Sunnudagaskóli kl 10:00. Fjölbreytt og fræðandi stund í umsjá Benna og Dísu.

Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjuferð Frímúrarastúkunnar Hamars. Bjarni Atlason og Benedikt Sigurðsson syngja einsöng og félagar úr Drengjakór Hamars leiða almennan söng undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista. Sr. Dagur Fannar Magnússon prédikar og sr. Bragi J. Ingibergsson þjónar með aðstoð Hamarsbræðra. Messukaffi á eftir í boði Hamars að Ljósatröð Hafnarfirði.

Öll velkomin!

stása

Æskulýðsdagurinn 5. mars

Sunnudagaskóli kl. 10:00 í umsjá Dísu og Benna. Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri.

Fjölskylduhátíð kl. 11:00. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Sérstakur gestur er Stása Þorvaldsdóttir sem ræðir kærleikann við Benna Sig, en þau sjá ennfremur um tónlistarflutning ásamt Helga Þór, Þórdísi Ólöfu, Söngfuglum Víðistaðakirkju og Sveini Arnari organista. Hressing eftir stundina.

Verið velkomin!

Víðistaðakirkja.03

Vígsluafmæli 26. febrúar

Kl. 10:00 Sunnudagaskóli í umsjá Dísu og Benna. Fjölbreytt og fræðandi stund fyrir börn á öllum aldri.

Kl. 11:00 Hátíðarguðsþjónusta í tilefni 35 ára vígsluafmælis Víðistaðakirkju. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup prédikar, Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Veislukaffi í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni.

Verið velkomin!


Celebrate International Women's Day with women paper chain on the pink background

Konudagurinn 19. febrúar

Sunnudagaskóli kl. 10:00 í umsjá Dísu og Benna. Fjölbreytt og skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri.

Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00 á konudaginn. Söngvararnir Bjarni Atlason, Benedikt Sigurðsson og Sigrún Dóra Jóhannsdóttir syngja við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar organista. Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunar. Hressing í safnaðarsal á eftir.

Verið velkomin!

Altarisganga

Sunnudagurinn 12. febrúar

Sunnudagaskóli kl. 10:00 í umsjá Dísu og Benna. Fjölbreytt, fjörug og fræðandi stund í kirkjunni og föndur og hressing í safnaðarsal á eftir.

Messa kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sr. Bragi þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffi í safnaðarsal að messu lokinni.

Verið velkomin!

Mynd3

Sunnudagurinn 5. febrúar

Sunnudagaskóli kl. 10:00 í umsjá Dísu og Benna. Fjölbreytt og skemmtileg stund. Hressing í safnaðarsal á eftir.

Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sr. Bragi þjónar með aðstoð messuþjóna. Kaffi í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni.

Verið velkomin!