Messuþjónar í Víðistaðakirkju
Svokallaðir messuhópar hafa verið starfræktir í Víðistaðakirkju um margra ára skeið. Hugmyndin að baki þeim er sú að auka með því þátttöku safnaðarfólks í helgihaldinu og að það verði sýnilegra í öllum þáttum þess. Messuþjónastarfið er skemmtilegt og gefandi sjálfboðastarf.
Síðastliðinn vetur störfuðu um 16-18 sjálfboðaliðar, fólk á öllum aldri, í fjórum messuhópum í Víðistaðakirkju, auk fermingarbarna sem einnig sinna messuþjónustu. Hver hópur mætir að jafnaði í fimmtu hverja messu og sjá messuþjónarnir um ákveðna þætti hennar. Þannig taka þeir á móti safnaðarfólki við kirkjudyr, afhenda sálmabækur og messuskrár, taka þátt í að biðja kirkjubænir og aðstoða við útdeilingu sakramentisins.
Messuþjónar eru einnig til taks fyrir prest og kirkjuvörð ef á þarf að halda, hella upp á kirkjukaffi og hjálpa til við að ganga frá eftir messu. Messuþjónum standa líka til boða ýmis námskeið og fræðsla um trú og kirkjustarf.
Starf messuþjóna í Víðistaðakirkju er tilboð til þeirra sóknarbarna sem vilja virkja þátttöku í starfi hennar á sínum forsendum. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni geta haft samband við prest kirkjunnar, séra Braga J. Ingibergsson í síma 565-2050/894-7173 eða með netpósti srbragi@vidisadakirkja.is.
Guðsþjónusta
Guðsþjónusta sunnudaginn 4. september kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og sóknarprestur þjónar. Samvera í safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustu þar sem boðið verður upp á kaffisopa, djús og kex. Verið velkomin!
Fermingarnámskeið
Fermingarundirbúningur fyrir börn sem hyggjast fermast í Víðistaðakirkju vorið 2017 hefst með sumarnámskeiði í næstu viku, dagana 15. – 18. ágúst. Dagskrá námskeiðsins hefst alla dagana kl. 9:00 að morgni og stendur yfir til kl. 12:00. Sjá nánar um tilhögun námskeiðsis á fermingarsíðunni.
Enn er hægt að skrá sig, annað hvort með því að smella á hnappinn hér að neðan eða mæta á námskeiðið og skrá sig á staðnum:
Sunnudagur 26. júní kl. 20:00 – Helgistund á sumarkvöldi
Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir þjónar í Víðistaðakirkju í helgistund á sumarkvöldi næstkomandi sunnudag. Helga Þórdís leikur hugljúfa tónlist á orgel og píanó og leiðir sálmasöng.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helgistund á sumarkvöldi sunnudainn 19. júní kl. 20:00
Sr. Bragi þjónar við tónlistarflutning Helgu Þórdísar. Eingöngu verða leiknir sálmar og tónlist eftir konur í tilefni kvennadagsins.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagur 12. júní:
Hjólreiðamessa í kirkjum Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Hjólað verður á milli kirknanna og áð í stutta stund á hverjum stað, sjá tímaáætlun hér að neðan. Hægt er að hjóla styttri leiðir í einstakar kirkjur eftir því sem hentar hverjum og einum. Boðið verður upp á hressingu á leiðinni.
Munið eftir hjálmunum!
Helgistund á sumarkvöldi
Helgistund á sumarkvöldi sunnudaginn 5. júní kl. 20:00. Helga Þórdís organisti leikur ljúfa tónlist og leiðir söng, sóknarprestur þjónar. Verið velkomin!