Sunnudagaskóli 1. sunnudag í aðventu kl. 11:00. Fjölbreytt og skemmtileg stund í umsjá Ísabellu og Helga. Skátar koma í heimsókn með friðarlogann. Heitt kakó og smákökur í safnaðarsal á eftir
Sunnudagur 24. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Skemmtileg stund í umsjá Ísabellu og Helga.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sr. Bragi sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Kaffihressing í safnaðarsal að guðsþjónustum loknum.
Verið velkomin!
Sunnudagur 17. nóvember
Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00. Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur og Sveinn Arnar organisti leikur undir. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson oþjónar fyrir altari og prédikar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í umsjá Ísabellu og Helga. Stundin fer fram uppi í Suðursal kirkjunnar.
Kaffihressing í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!
Skagfirðingamessa
Skagfirðingamessa kl. 11:00. Kór Skagfirðinga syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista, sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og Valgerður Erlingsdóttir flytur hugleiðingu.
Veitingar í safnaðarsal á eftir í boði Skagfirðingafélagsins.
Verið velkomin!
Sunnudagaskóli
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í umsjá Ísabellu og Helga. Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri, fer fram uppi í suðursal.
Verið velkomin!
Jólakortasmiðja
Jólakortasmiðja laugardaginn 9. nóv. kl. 11:00.
Smiðja fyrir alla fjölskylduna til að vinna saman að gerð fallegra jólakorta úr efni sem fellur til í kirkjunni. Meðal annars verður notast við gamlar sálmabækur, nótur frá kórum kirkjunnar, gamalt sunnudagaskólaefni og fleira.
Komum saman stór og smá til að eiga notalega stund saman!
Námskeiðið tekur um 2 klukkustundir og er í boði kirkjunnar. Skráning fer fram hjá Ísabellu í pinkupcycling@gmail.com.
Athugið að það þarf að skrá öll börn sem og fullorðna sem mæta. Börn undir 12 ára skulu mæta í fylgd með fullorðnum.
Kótilettukvöld
Kótilettukvöld í safnaðarheimilinu föstudaginn 8. nóv. kl. 19:00.
Verð kr. 5.000,- Pantanir sendist á netfangið kirkjuvordur@vidistadakirkja.is
Takmarkaður sætafjöldi í boði.
Orgelandakt / Kyrrðarstund
Miðvikudaginn 6. nóv kl. 12:00 mun Sveinn Arnar organisti leika valin orgelverk og svo hefst kyrrðarstund kl. 12:10.
Eftir stundina verður boðið upp á íslenska kjötsúpu í safnaðarsal.
Verið velkomin!
Trúar- og tignarlegir Tindar
Tónleikar miðvikudaginn 6. nóvember kl. 20:00.
Tindatríóið er skipað feðgunum Atla Guðlaugssyni, Bjarna Atlasyni og Guðlaugi Atlasyni. Auk sálmalaga og trúarlegra sönglaga má heyra lög sem hafa fest sig í sessi í útfararathöfnum. Meðleikari á tónleikunum er Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti Víðistaðakirkju.
Enginn aðgangseyrir.
Allra heilagra messa
Guðsþjónusta kl. 11:00 á allra heilagra messu sunnudaginn 3. nóv. Látinna minnst. Kór Víðistaðasóknar syngur undist stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista, Jón Rafnsson leikur á kontrabassa og Ástvaldur Traustason á píanó. Sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Í tilefni upphafs Vetrardaga í Víðistaðakirkju verður boðið upp á veglegar veitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustum loknum.










