Fimmtudaginn 3. nóv. kl. 20:00 verða tónleikar í kirkjunni með kórtónlist, þjóðlagatónlist og dægurtónlist eftir Benny Andersson. Flytjendur eru Kór Víðistaðasóknar, Kór Seljakirkju, Barbörukórinn, Benedikt Sigurðsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir ásamt hljómsveit hússins. Aðgangseyrir er kr. 3.500,-. Miðasala á tix.is og við innganginn.
Orgelandakt og kyrrðarstund
Miðvikudaginn 2. nóv. kl. 12:00 leikur Sveinn Arnar organisti valin orgelverk fyrir kyrrðarstund sem hefst kl. 12:15. Súpa og brauð í safnaðarsal á eftir þar sem einnig verður boðið upp á söngstund við harmoníkuleik Benna Sig. Verið velkomin!
Sunnudagur 30. október
Sunnudagaskóli kl. 10:00. Fjölbreytt og fjörug stund fyrir börn á öllum aldri í umsjá Benna og Dísu. Hressing í safnaðarsal á eftir.
Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00. Kórfélagarnir Aðalsteinn Guðlaugsson og Sigrún Dóra Jóhannsdóttir syngja við undirleik Sóknarbandsins. Léttar veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Verið velkomin!
Kyrrðarbænanámskeið
Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi og Víðistaðakirkja bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 29. október 2022 kl. 10-15 í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Kennarar námskeiðsins eru Arna Harðardóttir og Bergþóra Baldursdóttir ásamt Bylgju Dís Gunnarsdóttur mentori þeirra. Þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.
Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=7
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.
Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á eftirfarandi reikning:
Bn. 0114-26-1513
Kt. 450613-1500
Skýring: Kyrrðarbænanámskeið
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is.
Sunnudagurinn 23. október
Sunnudagaskóli kl. 10:00. Fjörug og fræðandi stund í umsjá Benna og Dísu.
Messa kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sr. Sighvatur Karlsson þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffihressing á eftir. Verið velkomin!
Sunnudagur 16. október
Sunnudagskóli kl. 11 í umsjá Dísu og Benna
Bleik messa kl. 17.
Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og Hanna Björk Guðjónsdóttir söngkona, flytur hugleiðingu. Hanna Björk syngur einnig einsöng og konur úr Kór Víðstaðasóknar syngja undir stjórn Sveins Arnars organista.
Verið velkomin!

Gömlu dansarnir
Gömlu dansarnir í Víðistaðakirkju sunnudaginn 2. október kl. 17:00. Stefnumót við harmonikkuna á Íslandi í umsjá Benna Sig. Sjá auglýsingu

Messa
messa sunnudaginn 2. október kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngur einsöng við undirleik Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur píanóleikara. Sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffihressing á eftir. Verið velkomin!
Sunnudagaskóli
Sunnudagaskóli 2. október kl. 10:00 í umsjá Benna og Dísu. Skemmtileg og fjörug stund fyrir börn á öllum aldri. Verið velkomin!