vidistadakirkja-logo-200px

Guðsþjónusta

Guðsþjónusta sunnudaginn 17. maí kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni. Á dagskrá verða hefðbundin alafundarstörf.

sqcomnewL

Guðsþjónusta

Kirkjuferð frímúrarastúkunnar Hamars í Hafnarfirði. Bjarni Atlason syngur einsöng og félagar úr Drengjakór Hamars leiðir almennan söng undir stjórn Helgu Þórdísar organista. Þorgeir Albert Elíesersson prédikar og sóknarprestur þjónar með aðstoð Hamarsbræðra. Verið velkomin!

IMG_9419

Fjölskylduhátíð

Fjölskylduhátíð kl. 11:00 á æskulýðsdaginn 1. mars. Barnakórinn syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og Birgitta Ólafsdóttir syngur einsöng. Töframaðurinn Einar Einstaki kemur í heimsókn. Margrét Lilja og Pétur leiða stundina. Kaffi, djús og snúðar í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!

unnamed

Bangsa- og náttfatastund

Fjölskylduhátíð sunnudaginn 2. febrúar kl.11:00. Kirkjugestir á öllum aldri eru hvattir til að koma í náttfötum og taka uppáhaldsbangsana sína með. Fjölbreytt og fræðandi stund með fjörugri og ljúfri tónlist. Umsjón hafa Margrét Lilja, Pétur og Helga Þórdís. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!

Kristin íhugun og djúpslökun

Boðið verður upp á kristna íhugun og djúpslökun í kirkjunni fimmtudaginn 30. jan. kl. 17:30 – 18:30. Umsjón hafa Ástríður Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari. Fyrir stundina er hentugt er að taka með sér æfingadýnu eða teppi til að liggja á og eitthvað til að breiða yfir sig í slökuninni. Íhugunartónlist hljómar frá kl. 17:15. Verið hjartanlega velkomin.

Messa

Messa sunnudaginn 26. janúar kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Kristínar Waage og sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar með aðstoð messuþjóna. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!