Fjölskylduhátíð kl. 11:00
Skólahljómsveit Víðistaðaskóla spilar undir stjórn Vigdísar Klöru Aradóttur. Fjölbreytt og fjörug stund í umsjá Braga, Maríu og Bryndísar. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!
María og Bryndís leiða sunnudagaskólann og bjóða upp á fræðandi og fjöruga dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Vöfflukaffi eftir sunnudagaskóla. Verið velkomin!
Látinna minnst. Kór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sóknarprestur þjónar með góðri aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Vöfflukaffi í safnaðarsal á eftir.
Karlakórinn Þrestir syngja undir stjórn Ástvalds Traustasonar og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Veitingar í safnaðarsal eftir messu þar sem fram fer myndlistarsýning Jóns Gunnarssonar listmálara.
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri í umsjá Maíu og Bryndísar. Hressing í safnaðarsal á eftir.
Hátíðartónleikar og Lútherskantata í tilefni 500 ára siðbótarafmælisins í Víðistaðakirkju á vegum Kjalarnessprófastsdæmis. Fjölbreytt efnisskrá og frumflutningur á Lúthersantötu eftir Eirík Á Sigtryggsson. Flytjendur: Kirkjukórar og organistar í prófastsdæminu, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og söngvararnir Ragnheiður Gröndal, Bylgja Dís fGunnarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson. Stjórnandi er Oliver J. Kentish. Nánari upplýsingar og miðasala á tix.is.
Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson mætir á staðinn og fræðir okkur enn frekar um efni og innihald verkefnisins sem við höfum nú unnið að undanfarin misseri.
Jafnframt gefst tækifæri til að ræða stöðu mála hjá okkur og þá aðgerðaáætlun sem liggur fyrir og var kynnt sl. vor.
Námskeiðið hefst með gómsætri súpu að hætti Kalla kirkjuvarðar.
Verið hjartanlega velkomin!
fer fram dagana 28. október – 5. nóvember. Sjá nánar hér.
Sunnudaginn 22. október er messa og sunnudagaskóli í Víðistaðakirkju kl. 11:00
Í messunni syngur Salný Vala Óskarsdóttir nemandi Söngskólans einsöng og félagar úr kór Víðistaðasóknar leiða safnaðarsöng. Helga Þórdís er organisti og sr. Hulda Hrönn Helgadóttir þjónar.
Sunnudagaskólinn verður uppi í suðursal undir stjórn þeirra Maríu og Bryndísar.
Kaffi og samfélag verður í safnaðarsal eftir stundirnar.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffihressing í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni.
Sögur og söngur, fjör og föndur er eitthvað af öllu því sem einkennir dagskrá sunnudagaskólans, sem er í umsjá Maríu og Bryndísar og fer fram uppi í suðursal krikjunnar. Hressing í safnaðarsalnum á eftir.