Víðist.kirkja01

Guðsþjónusta á Konudaginn

Guðsþjónusta sunnudaginn 20. feb. kl. 11:00 á Konudaginn og Biblíudaginn. Konur úr Kór Víðistaðasóknar syngja undir stjórn Sveins Arnars organista og Alrún María Skarphéðinsdóttir, nemandi í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, leikur einleik á píanó. Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Verið velkomin!

Vkirkja06

Guðsþjónusta 13. febrúar

Guðsþjónusta sunnudaginn 13. feb. kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sóknarprestur þjónar ásamt messuþjónum kirkjunnar. Verið velkomin!

Vetur.kvöld01

Guðsþjónusta 6. febrúar

Guðsþjónusta sunnudaginn 6. febrúar kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Verið velkomin!

2015.9983b

Kyrrðarstund

Kyrrðarstund miðvikudaginn 2. febrúar kl. 12:10. Notaleg fyrirbænastund með ljúfum tónum. Boðið er upp á súpu í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kyrrðarstundir verða svo áfram á sama tíma á miðvikudögum.

Vetur.himinn

Messað 6. febrúar

Ekkert opið helgihald hefur verið í kirkjunni í janúar vegna samkomutakmarkana, en vonandi fer að hylla undir betri tíma sem getur gefið svigrúm fyrir opnun helgihalds að nýju. Í ljósi fregna um mögulega slökun á takmörkunum í næstu viku þá er nú stefnt að því að hafa guðsþjónustu sunnudaginn 6. febrúar á hefðbundnum tíma kl. 11:00

covid-19-virus-1500x790

Helgihald fellur niður um jólin

Vegna hertra samkomutakmarkana sem taka gildi 22. desember og erfiðrar stöðu kórónuveirufaraldurs þá hefur verið ákveðið að fella niður helgihald um jól og áramót. Jólahelgistund verður þó send út á FB-síðu Víðistaðakirkju.

Advent_4

4. sunnudagur í aðventu

Sunnudagaskóli kl. 10:00. Fjölbreytt, falleg og jólaleg stund fyrir börn á öllum aldri, í umsjá Benna Sig. og Helgu Braga. Verið velkomin!