gisliauppsolum

Leiksýning: Gísli á Uppsölum

Fimmtudagskvöldið 28. okt. kl. 20:00 verður boðið upp á einleik um Gísla á Uppsölum í flutningi Elvars Loga Hannessonar í Kómedíuleikhúsinu. Sýningin er á dagskrá Vetrardaga í Víðistaðakirkju. Enginn aðgangseyrir. Verið velkomin!

music-note-design-element-doodle-260nw-666326815

Orgelandakt og kyrrðarstund

Miðvikudaginn 27. okt. kl. 12:00 er á dagskrá Vetrardaga boðið upp á orgelandakt þar sem Sveinn Arnar organisti leikur valin orgelverk. Kyrrðarstund hefst svo í beinu framhaldi kl. 12:15. Léttar veitingar í safnaðarsal eftir stundina. Verið velkomin!

Víðistaðakirkja.2

Vetrardagar í Víðistaðakirkju

Dagskrá Vetrardaga í Víðistaðakirkju hefst á sunnudaginn kemur, þann 24. okt. kl. 11:00 með tónlistarguðsþjónustu (sjá viðburði). Í vikunni næstu verður svo boðið upp á ýmsa afar áhugaverða viðburði og má þar nefna kaffihúsa- og menningarkvöld kirkjukórsins á þriðjudagskvöldið, leiksýningu Kómedíuleikhússins um Gísla á Uppsölum á fimmtudagskvöldið, tónlistardag barnanna þar sem Þorri og Þura koma í heimsókn á föstudaginn og ýmislegt fleira. Enginn aðgangseyrir er á viðburðina. Sjá nánar í dagskrá Vetrardaga.

401838.2e16d0ba.fill-1200x630-c100

Tónlistarguðsþjónusta

Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00 í upphafi „Vetrardaga í Víðistaðakirkju”. Hera Björk, Benni Sig og Sveinn Arnar sjá um tónlistarflutning og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Léttar veitingar í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!

04

Bleik messa

Bleik messa verður sunnudaginn 17. október kl. 17:00. Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og Brynja Björk Gunnarsdóttir, formaður stuðningsfélagsins Brjóstaheill – samhjálp kvenna, flytur hugleiðingu. Konur úr Kirkjukórnum syngja undir stjórn Sveins Arnars organista. Verið velkomin!

2.sæti.720

Kyrrðarstundir

Kyrrðarstundir hefjast á ný miðvikudaginn 6. október og verða á hverjum miðvikudegi fram að aðventu kl. 12:10. Boðið verður upp á súpu og brauð á eftir í safnaðarheimilinu. Sjá nánar hér.

Altari

Messa

Messa sunnudaginn 10. október kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffihressing á eftir. Verið velkomin!

2012.5307b

Fjölskylduhátíð

Fjölskylduhátíð sunnudaginn 3. október kl. 11:00. Benedikt Sigurðsson kirkjuvörður sér um tónlistarflutning og sóknarprestur þjónar fyrir altari. Verið velkomin!

Gudrun_Arny_Karlsdottir

Poppmessa

Poppmessa sunnudaginn 26. sept. kl. 17:00. Guðrún Árný sér um tónlistarflutning ásamt Sveini Arnari organista kirkjunnar og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Verið velkomin!

434A0700b

Barnakór Víðistaðakirkju

Starf Barnakórs Víðistaðakirkju hefst á morgun fimmtudaginn 16. september kl. 13:30 – og verða æfingar kórsins á þessum tíma alla fimmtudaga í vetur. Stjórnandi er nýr organisti kirkjunnar Sveinn Arnar Sæmundsson. Sjá nánar upplýsingar og skráningarform hér.