Hjólreiðamessa

Sunnudaginn 23. júní verður hjólreiðamessa í kirkjum í Hafnarfirði og Garðabæ. Hjólað verður á milli kirknanna og áð í stutta stund á hverjum stað samkvæmt eftirfarandi áætlun:

Kl. 10:00     Ástjarnarkirkja – Upphafsbæn og sálmur

Kl. 10:00     Vídalínskirkja – Upphafsbæn og sálmur

Kl. 10:30     Hafnarfjarðarkirkja – Miskunnarbæn, dýrðarsöngur, lestrar

Kl. 11:00     Víðistaðakirkja – Guðspjall og sálmur. Hressing

Kl. 11:30     Garðakirkja – Hugleiðing, kirkjubæn

Kl. 12:15     Bessastaðakirkja – Altarisganga

Kl. 12:30     Haldið heim

Hægt er að hjóla styttri leiðir og koma í einstakar kirkjur eftir því hvað hentar hverjum og einum. Kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að hjóla saman. Munið eftir hjálmunum!

Starfsmannabreytingar

Nýverið lét Karl Kristensen af störfum fyrir aldurs sakir sem kirkjuvörður í Víðistaðakirkju og við tók Margrét Lilja Vilmundardóttir. Margrét Lilja segist full tilhlökkunar til að takast á við nýja starfið en hún er ný flutt með fjölskyldu sína til Hafnarfjarðar eftir sex ára búsetu á Súðavík. Margrét Lilja á að baki fjölþætta starfsreynslu, m.a. í kirkju- og félagsstarfi sem hún telur að muni nýtast vel í kirkjuvarðarstarfinu. Hún hefur lokið diplóma námi í nútímadansi frá Listadansskóla Íslands, BA prófi frá íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og BA prófi í guðfræði frá sama skóla. Samhliða starfi sínu í Víðistaðakirkju leggur Margrét Lilja stund á magister nám í guðfræði.

Á síðasta aðalsafnaðarfundi Víðistaðasóknar gaf Gunnar Hólmsteinsson ekki kost á sér til áframhaldandi setu í sóknarnefnd, en þar hefur hann starfað frá stofnun sóknarinnar, eða í 42 ár. Gunnar hefur verið gjaldkeri sóknarinnar allan þennan tíma – sem sennilega er einsdæmi í sögu kirkjusókna á höfuðborgarsvæðinu. Nýr gjaldkeri sóknarinnar er Ragnar Z. Guðjónsson. Sóknarnefnd Víðistaðakirkju bíður þau Margréti Lilju og Ragnar hjartanlega velkomin til starfa.