Skráning er hafin í fermingarstarf Víðistaðakirkju 2026-2027 og fermingu vorið 2027. Skráningin fer fram hér.
Helgihald um hátíðirnar
Hér má sjá yfirlit yfir helgihaldið í Víðistaðakirkju um jól og áramót:

Vetrardagar í Víðistaðakirkju
Árlegir Vetrardagar hefjast þann 1. nóvember nk. og standa yfir til 9. nóvember. Að vanda verður ýmislegt á dagskránni og er hægt að skoða hana hér að neðan og á Facebook og Instagram síðum kirkjunnar:

Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir hefjast aftur í næstu viku – miðvikudaginn 17. sept. kl. 12:10 – og verða vikulega á þessum tíma til loka nóvember. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Verið velkomin!

Sumarkirkjan
Líkt og undanfarin ár verður Víðistaðakirkja í samstarfi við aðrar kirkjur í Hafnarfirði og Garðabæ um verkefnið Sumarkirkjan í Garðakirkju. Þar verða Sumarmessur á vegum þessara kirkna alla sunnudaga í sumar kl. 11:00 – í júní, júlí og ágúst. Eftir hverja messu er svo boðið upp á hressingu í hlöðunni á Króki ásamt skemmtilegri dagskrá. Sjá áætlun hér að neðan:

Fermingarskráning 2026
Fermingarskráning er hafin í fermingarstarf Víðistaðakirkju veturinn 2025 – 2026 og fermingu vorið 2026. Skráið hér.
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur verður haldinn sunnudaginn 30. mars kl. 12:00 – að lokinni guðsþjónustu í kirkjunni. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Boðið verður upp á súpu og brauð í upphafi fundar.
Helgihald um jól og áramót
Aftansöngur kl. 17:00 á aðfangadag, hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 á jóladag og hátíðarhelgistund á gamlársdag kl. 17:00.
Sjá nánar hér og í viðburðum á forsíðu.
Vetrardagar í Víðistaðakirkju
Vetrardagar í Víðistaðakirkju verða nú dagana 3. – 10. nóvember nk. Að vanda verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sjá dagskrá hér að neðan:

Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir hefjast aftur miðvikudaginn 2. október kl. 12:20. Þær verða með sama formi og áður, nærandi stundir með fyrirbænum og notalegri tónlist. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða skrá þau hér. Að lokinni stund í kirkjunni er boðið upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu.
Verið velkomin!










