Guðsþjónusta kl. 11:00
Helga Þórdís organisti sér um tónlistarflutning og sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Helga Þórdís organisti sér um tónlistarflutning og sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sr. Bragi þjónar fyrir altari. Fermd verða:
Andri Benedikt Egilsson Langdal Breiðvangi 18, Hf. Brynjar örn Hlynsson Breiðvangi 16, Hf. Dagný Lilja Svansdóttir Laufvangi 5, Hf. Erik Nói Gunnarsson Vesturvangi 1, Hf. Hreiðar Snær Jónsson Vesturvangi 8, Hf. Kolbrún Ásta Ævarsdóttir Hraunbrún 3, Hf. Marteinn Logi Jóhannsson Skúlaskeiði 10, Hf.Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sr. Bragi þjónar fyrir altari. Fermd verða:
Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir Þrúðvangi 9, Hf.Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sr. Bragi þjónar fyrir altari. Fermd verða:
Andri Stefánsson Breiðvangi 50, Hf. Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Klettahrauni 6, Hf. Arna Sveinsdóttir Breiðvangi 26, Hf. Dagur Þór Jónsson Hjallabraut 37, Hf. Eyrún Haraldsdóttir Hjallabraut 2, Hf. Haukur Ingi Jónsson Norðurbakka 7c, Hf. Hekla Ólafsdóttir Hjallabraut 35, Hf. Hjördís Lóa Johnsen Glitvangi 27, Hf. Katrín Pála Erlingsdóttir Breiðvangi 7, Hf. Kristján Bragi Gunnarsson Laufvangi 6, Hf. Sólveig Þóra Þorsteinsdóttir Norðurvangi 22, Hf.Árleg kirkjuferð Frímúrarastúkunnar Hamars í Hafnarfirði. Bjartmar Sigurðsson syngur einsöng og félagar úr Drengjakór Hamars leiða almennan söng undir stjórn Helgu Þórdísar organista, sóknarprestur þjónar fyrir altari, Gísli Kr. Björnsson prédikar og fleiri frímúrarabræður aðstoða við þjónustuna. Að lokinni guðsþjónustu verður messukaffi í boði Hamars í stúkuhúsinu að Ljósatröð 2, Hafnarfirði. Allir velkomnir!
Vígsluhátíð
Kór Víðistaðasóknar og Helga Þórdís Guðmundsdóttir organisti. Ljósm.: Halldór Víkingsson
Þann 28. febrúar síðastliðinn voru 30 ár liðin frá vígslu Víðistaðakirkju. Í tilefni vígsluafmælisins var haldin hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni sunnudaginn 25. febrúar sl. að viðstöddu fjölmenni. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikaði og séra Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónaði fyrir altari með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kór Víðistaðasóknar söng undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur organista og var meðal annars frumfluttur nýr sálmur eftir sr. Braga við lag Helgu Þórdísar af þessu tilefni. Eftir guðsþjónustuna var gestum boðið til hátíðar- og veislukaffis í safnaðarsal kirkjunnar.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar. Ljósm.: Halldór Víkingsson
Ávarp sóknarprests
Sr. Bragi J. Ingibergsson. Ljósm.: Halldór Víkingsson
Í ávarpi sínu til safnaðarins þakkaði sóknarprestur þeim fjölmörgu sem komið hafa að uppbyggingu kirkju og safnaðarstarfs allt frá stofnun sóknarinnar árið 1977. Færði hann starfsfólki og sóknarnefndarfólki fyrr og nú innilegar þakkir fyrir störf þess í gegnum tíðina, svo og öðrum sjáfboðaliðum eins og messuþjónum, sem starfað hafa við kirkjuna í 10 ár, og sömgfólki í kórum kirkjunnar. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi starfa Systrafélags kirkjunnar og alls þess sem félagskonur hafa lagt af mörkum til uppbyggingar kirkju og þá sérstaklega safnaðarheimilisins í gegnum tíðina. Sagði hann það starf seint fullþakkað.
Einnig þakkaði hann forvera sínum sr. Sigurði Helga Guðmundssyni fyrir að marka brautina og byggja upp söfnuð og kirkju í nýstofnaðri sókn, arkitektum kirkjunnar hjónunum Óla G. H. Þórðarsyni og Lovísu Christiansen fyrir fallegt guðshús og Baltasar Samper fyrir hans einstöku listaverk – freskumyndirnar sem prýða veggi hennar og hafa vakið verðskuldaða athygli í gegnum tíðina og draga fólk enn að til að skoða og njóta.
Í lok máls síns sagði hann það þó skipta mestu máli þegar fagnað væri að horfa fram á veginn og leggjast öll á eitt við að byggja enn frekar upp kirkjuna – sem hús en þó miklu fremur sem hinn kristna söfnuð. Byggja upp og efla starfið innan veggja hússins og á meðal safnaðarins, því þar er hin eiginlega kirkja Krists á jörðu.
Helga Ragnheiður Stefánsdóttir og Ragnar Z. Guðjónsson messuþjónar lesa bænir. Ljósm.: Halldór Víkingsson
Gylfi Ingvarsson messuþjónn les ritningarlestur. Ljósm.: Þóroddur Skaptason
Ávarp sóknarnefndarformanns
Hjörleifur Þórarinsson, sóknarnefndarformaður, sagði í ávarpi sínu í lok guðsþjónustunnar að sóknin stæði í mikilli þakkarskuld við allt það góða fólk sem ruddi brautina í safnaðarstarfinu og skóp þá umgjörð sem kirkjan býr við í dag. Sjálfboðaliðar sem störfuðu á fyrstu árum sóknarinnar hefðu lyft grettistaki við byggingu Víðistaðakirkju. Nefndi hann sérstaklega séra Sigurð Helga Guðmundsson sóknarprest og Einar Sveinsson sem var formaður sóknarnefndar á byggingartíma kirkjunnar.
Hann sagði að sóknarnefnd og byggingarnefnd hafi fengið dyggan stuðning frá bæjarráði Hafnarfjarðar, Jöfnunarsjóði sókna Þjóðkirkjunnar og frá fyrirtækjum og einstaklingum. Og enn þann dag í dag sé kirkjan að njóta stuðnings þessara aðila sem beri ævinlega að þakka.
Hjörleifur ásamt stjórnarkonum í Systrafélaginu Kristínu Ósk Kristinsdóttur, Lilju Matthíasdóttur og Sigríði G. Jónsdóttur. Ljósm.: Þóroddur Skaptason
Vegleg gjöf Systrafélagsins
Systrafélag Víðistaðakirkju gaf kirkjunni veglega peningagjöf í tilefni af vígsluafmælinu og var gjöfin, ein milljón króna, formlega afhent í hátíðarguðsþjónustunni á sunnudaginn. Tók Hjörleifur við gjöfinni og þakkaði þeim systrum vel fyrir og nefndi að allt frá árinu 1980 hefði Systrafélagið styrkt kirkjuna og safnaðarstarfið rausnarlega með peningagjöfum og með aðstoð við fermingarundirbúning. Peningarnir hafi m.a. verið notaðir til kaupa á innviðum og búnaði kirkjunnar og safnaðarsals – og á sínum tíma í vinnulaun Baltasars við gerð freskumyndanna í kirkjunni.
Hjörleifur Þórarinsson og Gunnar Hólmsteinsson. Ljósm.: Þóroddur Skaptason
Gjaldkeri í 41 ár
Gunnar Hólmsteinsson var heiðraður í lok guðsþjónustunnar fyrir fórnfúst og gott starf á vettvangi Víðistaðakirkju. Gunnar var kjörinn í fyrstu sóknarnefnd kirkjunnar og skipaður gjaldkeri hennar. Því hlutverki hefur hann gegnt alla tíð síðan eða í 41 ár. Tryggð hans, árvekni og umhyggja fyrir velferð safnaðarins er einstök.
Karl Kristensen meðhjálpari les lokabæn. Ljósm.: Halldór Víkingsson
Í tilefni 30 ára vígsluafmælis hefur verið sett inn á heimasíðuna Handbók Víðistaðakirkju en í henni má finna ýmsar upplýsingar um innra starf kirkjunnar, framtíðarsýn og markmið, en einnig um starfsumhverfi, lög, starfs- og siðareglur svo eitthvað sé nefnt.
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur, sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Veislukaffi í safnaðarsalnum að guðsþjónustu lokinni. Verið velkomin.
Fjölbreytt og skemmtileg stund í hátíðlega skreyttum sal í tilefni afmælis kirkjunnar. Umsjón hafa María og Bryndís. Veislukaffi í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!
Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn Ernu Guðmundsdóttur og sr. Sigfinnur Þorleifsson þjónar ásamt messuþjónum kirkjunnar. Hressing í safnaðarhemilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið velkomin!
Fjölbreytt og skemmtileg stund í umsjá Maríu og Bryndísar, fer fram uppi í suðursal kirkjunnar. Djús og kex í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!