images11

Æskulýðsdagurinn 6. mars:

Fjölskylduhátíð kl. 11:00

Um tónlistina sjá Antonía Hevesi, sem leysir tímabundið af sem organisti kirkjunnar, og dóttir hennar Fanný Lísa Hevesi sem syngur og spilar á fiðlu. Þá munu þær María og Bryndís, umsjónarkonur sunnudagaskólans leiða söng með börnunum og sóknarprestur þjóna fyrir altari. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

images11

 

 

 

 

 

 

Kaffi, djús og kex eftir guðsþjónustu.  Verið velkomin!

sqcomnewL

Sunnudagurinn 28. febrúar:

Guðsþjónusta kl. 11:00

Árleg kirkjuferð Frímúrarastúkunnar Hamars í Hafnarfirði. Drengjakór Hamars syngur undir stjórn Guðjóns Halldórs Óskarssonar, sr. Þórhallur Heimisson þjónar fyrir altari, Ólafur Magnússon prédikar og fleiri frímúrarabræður aðstoða við þjónustuna. Allir velkomnir!

sqcomnewL

Sunnudagaskólinn kl. 11:00

Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri í umsjá Maríu og Bryndísar. Hressing í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!

8183434978_b477d8dc95

Konudagurinn 21. febrúar:

Tónlistarguðsþjónusta kl. 11:00

Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn Ernu Guðmundsdóttur. Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir settur héraðsprestur þjónar. Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.

 8183434978_b477d8dc95

Sunnudagaskólinn kl. 11:00

Að venju fer sunnudagaskólinn fram uppi í suðursal. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Veitingar í safnaðarsalnum á eftir. Umsjón hafa María og Bryndís.

j0435099

Sunnudagurinn 31. janúar:

Messa kl. 11:00

Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur organista og sóknarprestur Bragi J. Ingibergsson þjónar með aðstoð messuþjóna. Kaffi, djús og kex í safnaðarheimiliu á eftir.

j0435099

Sunnudagaskóli kl. 11:00

Fjölbreytt dagskrá og skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri. Kaffi, djús og kex í safnaðarheimiliu á eftir. Umsjón: María og Bryndís.

j0410535