Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skólahjúkrunarfræðingur heldur fræðslufyrirlestur um uppbyggileg samskipti fullorðinna og barna með Samskiptaboðorðin að leiðarljósi sem hún bjó til og gaf út fyrr á þessu ári. Fyrirlesturinn fer fram í safnaðarsalnum miðvikudaginn 31. október kl. 20:00.
Myndlistarsýning
Á sunnudaginn mun hafnfirski myndlistarmaðurinn Gunnlaugur Stefán Gíslason opna sýningu á nokkrum verkum sínum í safnaðarsal Víðistaðakirkju. Er sýningin liður í dagskrá Vetrardaga í Víðistaðakirkju. Opnunin fram í messukaffi að lokinni guðsþjónustu.
Þrestir syngja
Guðsþjónustan á sunndaginn kemur, þann 28. október, markar upphaf Vetrardaga í Víðistaðakirkju að þessu sinni. Í guðsþjónustunni mun Karlakórinn Þrestir syngja undir stjórn Jóns Kristins Cortes. Boðið verður upp á veitingar í safnaðarsal að guðþjónustu lokinni. Sjá hér!
Ragnheiður Gröndal syngur á sunnudaginn
Konur munu sjá um alla þjónustu í guðsþjónustunni á sunnudaginn kemur utan kirkjuvarðar Karls Kristensen. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur sér um prestsþjónustuna, Ragnheiður Gröndal um allan tónlistarflutning og síðan munu konur úr hópi messuþjóna einnig taka þátt í guðsþjónustunni.
Sunnudagaskólinn verður svo að venju uppi í suðursalnum. Þar er boðið up á skemmtilega dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
Helgihald sunnudaginn 14. október
Messa og barnaguðsþjónusta (sunnudagaskólinn) kl. 11:00 á sunnudaginn kemur. Nánar hér.
Ljósmyndasamkeppni
Víðistaðakirkja efnir til ljósmyndasamkeppni í tilefni af 25 ára vígsluafmæli kirkjunnar á næsta ári. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á þeim tímamótum, kirkjunni sjálfri, starfi hennar og fallegu umhverfinu á Víðistaðatúni. Þema keppninnar er „Víðistaðakirkja – Víðistaðatún“ og þurfa myndirnar því að vera teknar á því svæði. Hver keppandi getur sent inn eins margar myndir og hann vill og þær mega vera teknar hvenær sem er. Nýheri styrkir keppnina og veitir vegleg verðlaun fyrir 3 bestu myndirnar, í 1. verðlaun er Canon Powershot A2400 IS Silver myndavél, 2. verðlaun Canon PIXMA iP4950 prentari og 3. verðlaun Pro 61,2 -151,4 cm þrífótur frá Camlink. Skilafrestur er 31. október nk. Myndir sendist á netfangið srbragi@vidistadakirkja.is merktar ljósmyndasamkeppni. Sjá nánar hér.
Bæn og biblíuleg íhugun
Miðvikudaginn 10. október verður haldið námskeið um bæn og biblíulega íhugun í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Fjallað verður um fornar og nýjar aðferðir við að tengja saman bæn og lestur Biblíunnar. Sérstök áhersla verður lögð á aðferð sem nefnist Lectio Divina og felur í sér innlifun í ákveðnar biblíufrásagnir. Fá þátttakendur bæklinginn Skóli Orðsins í hendur. Kennari á námskeiðinu er María Ágústsdóttir, verkefnisstjóri á Biskupsstofu. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 18 til kl. 20 og er boðið upp á hressingu í hléi. Ekkert þátttökugjald er en mikilvægt að skrá sig á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 528 4000.
Fjölskylduhátíð
Fjölskylduhátíð á sunnudaginn þann 7. október. Barna- og unglingakórinn syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. Sjá nánar hér.
Hádegistónleikar
Fyrstu hádegistónleikar Víðistaðakirkju í haust verða haldnir á föstudagurinn kemur, þann 5. október kl. 12:00. Emil Friðfinnsson hornleikari flytur verk eftir Telemann, Messiaen, Dukas, Mendelssohn og Saint-Saëns. Meðleikari er Örn Magnússon píanóleikari.
Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1.000,- og síðan er hægt að kaupa léttan málsverð í safnaðarheimilinu eftir tónleika sem kostar kr. 500,-. Allur ágóði rennur í orgelsjóð kirkjunnar.
Helgihald 30. september
Á sunnudaginn kemur, 30. sept. þjónar sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur og kirkjukórinn syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar organista. Sunudagaksólinn verður líka á sínum stað uppi í suðursal kirkjunnar. Sjá nánar hér.