2.Kor. 6.2
Tónlistarguðsþjónusta
Í tónlistarguðsþjónustu á konudaginn nk. sunnudag, 23. febrúar mun Kvennakór Hafnarfjarðar syngja undir stjórn Ernu Guðmundsdóttur og sr. Sigurður Kr. Sigurðsson þjóna með aðstoð messuþjóna. Kaffisopi í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!

Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir hefjast aftur miðvikudaginn 5. febrúar og verða á hverjum miðvikudegi í febrúar og mars kl. 12:10. Þetta eru rólegar stundir með ljúfri tónlist. Þá eru fluttar fyrirbænir og er hægt að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar og einnig er hægt að skrá þau hér. Boðið er upp á súpu og brauð og gott samfélag í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!

Guðsþjónusta
Guðsþjónusta sunnudaginn 9. febrúar kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna. Hressing í safnaðarheimilinu á eftir. Verið velkomin!

Bangsa- og náttfatastund
Fjölskylduhátíð sunnudaginn 2. febrúar kl.11:00. Kirkjugestir á öllum aldri eru hvattir til að koma í náttfötum og taka uppáhaldsbangsana sína með. Fjölbreytt og fræðandi stund með fjörugri og ljúfri tónlist. Umsjón hafa Margrét Lilja, Pétur og Helga Þórdís. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!






