Fimmtudagskvöldið 12. nóvember kl. 19:30 flytur Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur fyrirlestur um þátttöku trúarlegra samtaka í þróunarhjálp. Verið velkomin!
Fjör á fjölskylduhátíð
Við fáum góða gesti til okkar á sunnudaginn, þann 8. nóvember kl. 11:00, þegar Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn. Lotta mun flytja söngvasyrpu sem inniheldur öll helstu ævintýrin sem leikhópurinn hefur sett upp og nokkrar af vinsælustu persónunum mæta á svæðið. Sunnudagaskólinn verður líka á sínum stað í umsjá Maríu og Lovísu. Verið velkomin!
Líf mitt í Afríku
Miðvikudagskvöldið 4. nóvember kl. 20:00 segir Sr. Kjartan Jónsson frá lífi sínu og starfi í Afríku, sýnir myndir þaðan og afríska hluti. Skemmtilegur og fræðandi fyrirlestur. Verið velkomin!
Helgihald á allra heilagra messu
Á allra heilagra messu, sunnudaginn 1. nóvember, verður látinna minnst í guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og Dagný Björk Guðmundsdóttir syngur einsöng. Sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn verður á sama tímu uppi í suðursal kirkjunnar. Þar verður boðið upp á fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri. María og Bryndís leiða stundina.
Boðið verður upp á kaffi, djús og kex í elhúsinu að guðsþjónustum loknum.
Trú og þróun – fellur niður!
Af óviðráðanlegum orsökum fellur fyrirlesturinn niður – verður auglýstur aftur síðar: Fimmtudagskvöldið þann 29. október kl. 19:30 verður boðið upp á fyrirlestur, þar sem Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur fjallar um Trúarleg frjáls félagasamtök (FBOS) í þróunarstarfi. Allir velkomnir!
Fyrirlestur um málefni flóttafólks
Miðvikudaginn 28. október kl. 19:30 flytur Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri HK fyrirlestur í safnaðarsal kirkjunnar sem ber yfirskriftina: Staða fóttafólks frá Sýrlandi. – Hvað gerir hjálparstarf kirkjunnar? Allir velkomnir!
Guðsþjónusta 25. okt. kl. 11:00
Kór Öldutúnsskóla heimsækir Víðistaðakirkju og sér um söng í tónlistarmessu kl. 11:00 á sunnudag.
„Vetrardagar í Víðistaðakirkju” sunnudaginn 25. okt.:
Tónlistarmessa markar upphaf dagskrár „Vetrardaga í Víðiastaðakirkju” og hefst hún kl. 11:00, Kór Öldutúnsskóla syngur undir stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur. Sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna.
Sunnudagaskólinn verður svo á sama tíma uppi í suðursal kirkjunnar og er þar boðið upp á fjölbreytta dagskrá að vanda. María og Bryndís leiða stundina.
Að loknum guðsþjónustunum verður boðið upp á veitingar í safnaðarsalnum, þar sem gott tækifæri gefst til að skoða frábæra myndlistarsýningu Eddu Svavarsdóttur.
Listaverkauppboð verður í kennslustofunni kl. 13:00, þar sem boðnar verða upp klippimyndir Maríu Eiríksdóttur. Allur ágóði rennur til neyðaraðstoðar við flóttafólk.
Styrktartónleikar hefjast svo kl. 20:00. þar kemur fram frábært tónlistarfólk sem flytur tónlist til styrktar flóttafólki: Diddú, Bubbi Morthens, Guðrún Gunnarsdóttir, Ragnar Bjarnason, Þorgeir Ástvaldsson, Bjarni Arason, Ragnheiður Gröndal, Regína Ósk, Svenni Þór, Alma Rut, Hjörtur Howser, Eysteinn Eysteinsson, Hafsteinn Valgarðsson, Alda Dís, Tindatríó, Arnhildur Valgarðsdóttir, Kór Víðistaðasóknar og Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Sjá nánar hér
Miðaverð er kr. 2.900,- og fer miðasala fram á midi.is
Messa og sunnudagaskóli
Á sunnudaginn kemur verður messa kl. 11:00 í kirkjunni. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir héraðsprestur þjónar og nýtur aðstoðar messuþjóna kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn verður á sama tímu uppi í suðursal kirkjunnar. Þar er m.a. boðið upp á fjölbreytta dagskrá, fjörug lög, falleg orð og NebbiNú kemur kannski í heimsókn! María og Bryndís leiða stundina.
Að loknum sunnudagaskóla og messu verður kaffi, djús og kex í safnaðarsalnum.