Biblíuleg íhugun er kyrrðar- og íhugunarstund sem var vikulaga í boði síðastliðinn vetur og mun hefjast aftur þann 1. október nk. Í Biblíulegri íhugun er íhugaður einn guðspjallstexti hverju sinni og þá gjarnan komandi sunnudags – og er framkvæmdin samkvæmt hinni fornu Biblíulestraraðferð Lectio Divina/Biblíuleg íhugun. Biblíuleg íhugun fer fram á hverjum þriðjudegi kl. 18:00. Umsjón stundanna er í höndum þeirra Bergþóru Baldursdóttur og Nínu Dóru Pétursdóttur sem báðar eru messuþjónar í Víðistaðakirkju.
Guðsþjónusta og skírn
Í guðsþjónustunni á sunnudaginn kemur, þann 22. september kl. 11:00, verður barn borið til skírnar. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og sóknarprestur þjónar fyrri altari.
Eftir guðsþjónustu verður samvera með fermingarbörnum og foreldrum í safnaðarheimilinu.
Kyrrðarstundir
Kyrrðar- og fyrirbænastundir hefjast aftur í næstu viku. Eins og undanfarin ár verða stundirnar á miðvikudögum kl. 12:00 á hádegi. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu eftir stundirnar. Verið velkomin!
Messa sunnudaginn 15. september
Messa verður á sunnudaginn kemur, þann 15. september, kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Verið velkomin!
Guðsþjónusta 8. september
Guðsþjónusta verður á sunnudaginn kemur þann 8. september kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Verið öll velkomin!
Barnakór Víðistaðakirkju
Æfingar hjá barnakórnum verða á miðvikudögum kl. 14.30 – 15.20. Börn frá 8 ára aldri (3. bekk) eru velkomin í kórinn. Skráningarblöð má finna hér og er hægt að prenta það út og koma með kirkjuna eða senda það sem viðhengi á netfang kórstjóra, helga(hjá)viistadakirkja.is.
Allar nánari upplýsingar eru hjá kórstjóra, Helgu Þórdísi Guðmundsdóttur á netfangi eða í síma 8683110.
Tónlistarguðsþjónusta
Tónlistarguðsþjónusta verður á sunnudaginn kemur, þann 1. september kl. 11:00. Þá mun hljómsveitin Tilviljun leika létta og skemmtilega tónlist. Auk sóknarprests mun sr. Kjartan Jónsson sóknarprestur í Tjarnaprestakalli þjóna fyrir altari og prédika. Er sérstaklega vænst þátttöku fermingarbarna og fjölskyldna, en fermingarbörn úr báðum prestaköllum – þ.e. úr Víðistaðasókn, Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn – hafa sótt fermingarnámskeið hér í kirkjunni nú í vikunni. En allir eru að sjálfsögðu velkomnir!
Gjöf til íbúa sóknarinnar
Undanfarna daga hefur verið borin út kveðja frá Víðistaðakirkju til allra íbúa Víðistaðasóknar í tilefni 25 ára vígsluafmælis kirkjunnar þann 28. febrúar sl. Ákveðið var af þessu tilefni að ráðast í útgáfu á kynningarbæklingi um hin einstöku listaverk sem prýða kirkjuna – freskumyndirnar eftir Baltasar Samper.
Margir leggja leið sína í kirkjuna til að líta verkin augum og þar á meðal erlendir ferðamenn og listunnendur. Bæklingurinn nýi er bæði á íslensku og ensku – og var orðin nokkur þörf á að gefa út slíkan bækling þar sem eldri bæklingur var eingöngu á íslensku og þar að auki löngu uppurinn.
Er það von sóknarnefndar og starfsfólks kirkjunnar að þessari gjöf kirkjunnar til íbúa sóknarinnar verði vel tekið – og megi jafnframt verða hvatning til fólks að heimsækja kirkjuna, skoða freskumyndirnar og taka þátt í starfi kirkjunnar.
Nýr organisti
Ráðinn hefur verið nýr organisti við kirkjuna, Helga Þórdís Guðmundsdóttir og tekur hún við þann 1. september nk. er Árni Heiðar Karlsson lætur af störfum. Helga Þórdís hefur lokið kantorsprófi og einleiksáfanga á orgel frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hún lauk áður kennara og burtfararprófi á píanó frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði post graduadenám í píanóleik í Barcelona. Helga hefur framhaldspróf í einsöng og réttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari. Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Ástjarnarkirkju hér í Hafnarfirði. Sem organisti mun Helga Þórdís halda utan um allt tónlistarstarf kirkjunnar, leika á orgelið við helgihald og stjórna bæði kirkjukór og barnakór. Er hún boðin velkomin til starfa.