Vetrarhátíð Víðistaðakirkju
Miðvikudagur 29. október
Kl. 12 Kyrrðarstund. Súpa á eftir.
Kl. 20 „Ekki tjaldar sorgin til einnar nætur“.
Sr. Halldór Reynisson starfandi sóknarprestur Víðistaðakirkju og stjórnarmaður í Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð ræðir efnið.
Fimmtudagur 30. Október
Kl. 20 Messan – Messuþjónar – hvað er það?
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarprestur í Hallgrímskirkju ræðir um hlutverk messuþjóna. Þá verður einnig boðið upp á fræðslu um guðsþjónustuna.
Verið hjartanlega velkomin.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00
Sunnudaginn 19. oktober er Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11
Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir þjónar. Félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórn Helgu Þ. Guðmundsdóttur organista.
Molasopi á eftir. Allir velkomnir
6-9 ára Barnastarf Víðistaðakirkju
6-9 ára barnastarf í Víðistaðakirkju er á miðvikudögum frá kl.15.00 – 16.00 og þá er líf og fjör í kirkjunni. Það verður farið í leiki, sungið, föndrað, perlað, spilað og haldið diskótek. Það verður teboð og bjóðum við bangsum og öðrum tuskudýrum í náttfatapartí.
Við viljum biðja foreldra/forráðamenn að skrá börn sín formlega í starfið með því að senda epóst á mariagunn@gmail.com. Þetta er gert til þess að gæta
TTT – Starf fyrir tíu til tólf ára börn
Nú hefst tíu til tólf ára starfið í Víðistaðakirkju.
Í vetur komum við til með að vinna þemavinnu. Unnið er með hvert þema í þrjú til fjögur skipti.
Í október munum við byrja á þema sem ber yfirskriftina: Við sjálf eða sjálfsvirðing.
Í nóvember munum við fjalla um Tilfinningar sem
Sunnudaginn 5. oktober er guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00
Við söfnumst saman á sunnudaginn og eigum gott samfélag í sunnudagaskólanum og guðsþjónustunni. Barn verður borið til skírnar. Félagar úr Kór Víðistaðasóknar syngja undir stjórn Helgu organista. Siggi og María sjá um sunnudagaskólann og Halldór þjónar sem prestur. Svo er molasopi og djús á eftir. Allir velkomnir.