Kirkja fjallræðunnar

Víðistaðakirkja

Vakir æ við Víðistaðatún,

veitir jafnan athvarf, skjól og hlíf,

kirkjan fagra hátt við hraunsins brún,           

horfir yfir vegferð manns og líf.

Viðburðir

Sunudagaskóli

Sunnudagaskóli sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00. Fjölbreytt og skemmtilegt starf í umsjá Svanhildar Helgadóttur, fer fram uppi í Suðursal. Verið velkomin!

Lesa meira

Skagfirðingamessa

Skagfirðingamessa sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00. Karlakórinn Straumniður Héraðsvatna syngur undir stjórn Sveins Arnars organista. Kristjana Guðbrandsdóttir flytur hugleiðingu og sr. Bragi J. Ingibergsson þjónar.

Lesa meira

Kórtónleikar

Hallveigarsynir, kór Oddfellowstúkunnar nr. 3 Hallveigar, bjóða tiltónleika laugardaginn 7. nóv. kl. 16:00, þar sem allur ágóði rennur óskiptur til MannúðarsjóðsHallveigar. Sérstakur gestur kórsins er

Lesa meira

Álfastund

Álfastund miðvikudaginn 4. nóv. kl. 17:00 í Víðistaðakirkju. Fjölskyldusamvera sem endar með kvöldverði. Söngur – Bænir – Föndur – Kvöldverður Notalega samverustund fyrir börn og

Lesa meira

Allra heilagra messa 1. nóvember

Guðsþjónusta á Alrra heilagra messu sunnudaginn 1. nóvember kl. 11:00. Látinna minnst. Kór Víðistaðasóknar syngur ásamt Ástu Sigríðar Arnardóttur söngkonu undir stjórn Sveins Arnars organista.

Lesa meira

Sunnudagurinn 25. október

Messa kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli kl. 11:00. Fjölbreytt

Lesa meira

Fréttir

Kyrrðarbænastundir

Í október hefjast kyrrðarbænastundir í kirkjunni og verða þær á miðvikudögum kl. 17:30. Um er að ræða samstarfsverkefni Víðistaðakirkju og Hafnarfjarðarkirkju. Umsjón hafa Bergþóra Baldursdóttir og Bylgja Dís Gunnarsdóttir. Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar

Lesa meira »

Vinir í Víðistaðakirkju

„Vinir í Víðistaðakirkju” er yfirskrift barnastarfs fyrir krakka í 1. – 6. bekk. Þar verður m.a. boðið upp á kórsöng, hljóðfæraleik, leiklist, föndur og leiki. Skipt verður upp í hópa og unnið eftir því sem andinn blæs í brjóst í hverju sinni Umsjón með starfinu hafa Benni Sig og Sveinn Arnar. Rafræn skráning hér en einnig er hægt að senda póst á vidistadakirkja77@gmail.com

Lesa meira »

Viðburðir

Bragi Ingibergsson

Sunudagaskóli

Sunnudagaskóli sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00. Fjölbreytt og skemmtilegt starf í umsjá Svanhildar Helgadóttur, fer fram uppi í Suðursal. Verið velkomin!

Lesa meira
Bragi Ingibergsson

Skagfirðingamessa

Skagfirðingamessa sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00. Karlakórinn Straumniður Héraðsvatna syngur undir stjórn Sveins Arnars organista. Kristjana Guðbrandsdóttir flytur hugleiðingu og sr. Bragi J. Ingibergsson þjónar.

Lesa meira
Bragi Ingibergsson

Kórtónleikar

Hallveigarsynir, kór Oddfellowstúkunnar nr. 3 Hallveigar, bjóða tiltónleika laugardaginn 7. nóv. kl. 16:00, þar sem allur ágóði rennur óskiptur til MannúðarsjóðsHallveigar. Sérstakur gestur kórsins er

Lesa meira
Bragi Ingibergsson

Álfastund

Álfastund miðvikudaginn 4. nóv. kl. 17:00 í Víðistaðakirkju. Fjölskyldusamvera sem endar með kvöldverði. Söngur – Bænir – Föndur – Kvöldverður Notalega samverustund fyrir börn og

Lesa meira
Bragi Ingibergsson

Allra heilagra messa 1. nóvember

Guðsþjónusta á Alrra heilagra messu sunnudaginn 1. nóvember kl. 11:00. Látinna minnst. Kór Víðistaðasóknar syngur ásamt Ástu Sigríðar Arnardóttur söngkonu undir stjórn Sveins Arnars organista.

Lesa meira
Bragi Ingibergsson

Sunnudagurinn 25. október

Messa kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli kl. 11:00. Fjölbreytt

Lesa meira

Fréttir

Kyrrðarstundir

Kyrrðarstundir hefjast á ný miðvikudaginn 6. október og verða á hverjum miðvikudegi fram að aðventu kl. 12:10. Boðið verður upp á súpu og brauð á eftir í safnaðarheimilinu. Sjá nánar hér.

Lesa meira »

Barnakór Víðistaðakirkju

Starf Barnakórs Víðistaðakirkju hefst á morgun fimmtudaginn 16. september kl. 13:30 – og verða æfingar kórsins á þessum tíma alla fimmtudaga í vetur. Stjórnandi er nýr organisti kirkjunnar Sveinn Arnar Sæmundsson. Sjá nánar upplýsingar og skráningarform hér.

Lesa meira »

Barnastarfið hefst í dag

Barnastarfið hefst í dag 15. september. Starf fyrir 6-9 ára börn er og verður í vetur á miðvikudögum kl. 13:30 og fyrir 10-12 ára börn á miðvikudögum kl. 14:30. Umsjón með starfinu hafa Benedikt Sigurðsson kirkjuvörður og guðfræðinemi og Helga Bragadóttir guðfræðingur.

Lesa meira »

Viðgerðir á Víðistaðakirkju

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum sem átt hefur leið hjá Víðistaðakirkju í sumar að þar hafa verktakar verið að störfum. Löngu tímabær viðgerð og enduruppbygging á þakkanti kirkjunnar fer fram auk viðhaldsvinnu á læstri málmklæðningu á þaki og endurnýjunar á áfellum. Einnig verður skipt um glugga og hurðir sunnan megin í kirkjubyggingunni. Það er Rafblikk ehf í Hafnarfirði sem annast framkvæmd verksins. Að loknu þessu verki standa vonir til að loftun þaks stórbatni og minni hætta verði á leka í kirkjunni, sem því miður nokkuð hefur borið á í gegnum tíðina. Verkið er unnið undir  umsjá og eftirliti verkfræðistofunnar VSB. Áætluð verklok eru 1.september og markar þessi framkvæmd fyrsta áfanga á viðamiklu viðhaldsverkefni sem söfnuðurinn stendur frammi fyrir. Á næsta ári er ráðgert að halda áfram og endurnýja loftaplötur inni í kirkjunni, en þær eru á mörgum stöðum ónýtar vegna rakamyndunar. Einnig þarf að skipta út og endurnýja rakasperru inni í kirkjunni. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir er áætlaður um 70 milljónir og verkefnið er því risavaxið fyrir söfnuðinn. Styrkur til framkvæmdarinnar hefur fengist úr Jöfnunarsjóði sókna á þessu ári, en það er mikið verk fram undan við að fjármagna framhald verksins. Fyrir utan að hýsa eitt merkasta kirkjulistaverk á Íslandi, freskumyndir Baltasar Samper, þá er Víðistaðakirkja einnig samveru og samkomustaður sóknarbarna og allra annarra Hafnfirðinga sem þangað leita. Fjöldi athafna, s.s. funda, tónleika og skólaútskrifta og fleiri viðburða á vegum Hafnarfjarðarbæjar og hinna ýmsu samtaka og félaga, fara fram í Víðistaðakirkju á ári hverju og því er mikilvægt að vel takist til í þessu mikla verkefni.

Lesa meira »

Föst dagskrá í kirkjunni

Altari