Blómamessa – Vorhátíð

Hin árlega blómamessa verður á sunnudaginn kemur þann 27. apríl kl. 11.00. Þá er jafnframt vorhátíð Víðistaðakirkju og er sérstaklega vænst góðrar þátttöku barna og unglinga í æskulýðsstarfi kirkjunnar og fjölskyldna þeirra. Í guðþjónustunni syngur Barnakór kirkjunnar undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð umsjónarfólks sunnudagaskólans. Að lokinni guðþjónustu verður boðið upp á grillaðar pylsur á kirkjutorginu og farið í leiki ef aðstæður leyfa. Verið velkomin!

Kirkjuferð frímúrara

Á sunnudaginn kemur sem er 1. sunnudagur í föstu er guðsþjónusta kl. 11:00. Þá mæta frímúrarar úr Hamri í Hafnarfirði til kirkju ásamt fjölskyldum sínum og taka jafnframt beinan þátt í athöfninni.  Drengjakór Hamars syngur undir stjórn Sigurðar H. Stefánssonar og Helga Þórdís Guðmundsdóttir organisti leikur á orgelið. Lárus Sólberg Guðjónsson prédikar og sóknarprestur þjónar fyrir altari. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir! Sunnudagaskólinn er svo á sínum stað, uppi í suðursal kirkjunnar, á sama tíma.