Kyrrðarbæn (Centering Prayer)
Boðið verður upp á tveggja kvölda námskeið um kyrrðarbæn (Centering Prayer) hér í Víðistaðakirkju fimmtudagskvöldin 24. og 31. okt. kl. 19:30. Leiðbeinendur eru sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Ingunn Bjarnadóttir. Ekkert þátttökugjald. Ný bók um Kyrrðarbænina „Vakandi hugur, vökult hjarta“ verður til sölu á staðnum.
Kyrrðarbænin (Centering Prayer) byggir á aldagamalli hefð sem síðan var endurvakin upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn síðan þá. Bænin byggir á orðlausri nálgun við Guð, þar sem biðjandinn tekur ákvörðun um að leitast við að opna hjarta sitt fyrir nærveru Guðs og verkan í lífi sínu. Iðkanin felst síðan í því að læra að leiða hjá sér truflanir sem sækja á þann tíma sem bænin stendur yfir. Þetta er eitt einfaldasta form íhugunarbænar sem um getur og geta allir lært það og stundað. Hægt er að nálgast fleiri upplýsingar um Kyrrðarbænina á heimasíðunni www.kristinihugun.is.
Safnað fyrir Landspítalann
Menningarmessa
Fjáröflunarmálsverður – Listaverkasala – Kökubasar!
Söfnun Víðistaðakirkju fyrir línuhraðli á LSH verður tengd árlegri hátíð kirkjunnar sem nefnd er „Vetrardagar í Víðistaðakirkju“ og stendur yfir í vikutíma. Meginþungi söfnunarinnar fer fram sunnudaginn 20. október nk. Dagskráin hefst á svokallaðri „menningarmessu“ þar sem hlutverk kirkjukórs undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur verður enn stærra en á venjulegum sunnudegi og auk þess mun Sigurður Skagfjörð baritónsöngvari syngja einsöng. Þá munu þeir Karl kirkjuvörður og sr. Bragi sóknarprestur lesa upp frumsamin ljóð sem myndskreytt verða með ljósmyndum hins síðarnefnda.
Að guðsþjónustu lokinni gefst kirkjugestum kostur á að snæða fjáröflunarmálsverð í safnaðarsalnum og kostar hann 1.000,- kr fyrir manninn. Eftir matinn hefst svo sala (uppboð) myndverka (málverka/ljósmynda), þar sem í boði verða verk eftir Baltasar, Jón Thor Gíslason, Jón Gunnarsson, Tarnús (Grétar Magnús Guðmundsson), Röggu, HS, Maríu Eiríksdóttur, Karl Kristensen og Braga J. Ingibergsson.
Jafnframt fer fram veglegur kökubasar þar sem gestir og gangandi geta keypt sér dýrindis hnallþórur og/eða brauðtertur á sunnudagskaffiborðið. Systrafélagskonur, sóknarnefndarfólk, kórfólk, messuþjónar og starfsfólk kirkjunnar stendur að basarnum.
Allur ágóði af þessum verkefnum rennur óskiptur í söfnunina – og það gerir einnig innkoma á hádegistónleikum föstudaginn 25. okt. er Gréta Hergils sópran syngur við meðleik Arnhildar Valgarðsdóttur. Auk þess verður tekið við frjálsum framlögum alla vikuna og jafnframt minnt á söfnunarsíma – sjá hér til hliðar.
Biblíuleg íhugun
Í dag kl. 18:00 verður vikuleg samvera í Biblíulegri íhugun. Hugleiddur verður guðspjallstexti næsta sunnudags, 21. sunnudags eftir þrenningarhátíð – en hann er að finna í Jóhannesarguðspjalli, 4. kafla, versunum 34-38.
Messa
Hefðbundin messa verður á sunnudaginn kemur, þann 13. október kl. 11:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Glódísar M. Guðmundsdóttur og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar. Verið velkomin!
Gospelnámskeið
Víðistaðakirkja býður upp á gospelnámskeið fyrir unglinga í 7. – 10. Bekk. Námskeiðið hefst þann 16. október og stendur í 4 vikur. Æfingar verða á miðvikudögum kl. 16:45 – 18:00. Námskeiðslok verða þann 10. nóvember og þá mun kórinn sjá um söng á fjölskylduhátíð kirkjunnar. Unnið verður með létt og skemmtileg lög sem kennd verða í tveimur röddum. Ekkert kostar að koma á námskeiðið. Skráning er hjá Helgu Þórdísi kórstjóra á netfanginu helga@vidistadakirkja.is
Fjölskylduhátíð
Á sunnudaginn kemur, þann 6. október kl. 11:00, verður fyrsta fjölskylduhátíðin í vetur. Þá mun hinn nýi Barnakór kirkjunnar syngja undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur kórstjóra og auk þess koma börn í heimsókn og leika á hljóðfæri. Sunnudagaskólinn fléttast einnig inn í guðsþjónustuna. Verið velkomin!
Saxófónleikur í tónlistarguðsþjónustu
Í tónlistarguðsþjónustu á sunnudaginn kemur þann 29. september kl. 11:00 munu þau Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer saxófónleikarar sjá um tónlistarflutning. Sr. Gunnar Jóhannesson héraðsprestur mun þjóna við guðsþjónustuna. Verið velkomin!
Biblíuleg íhugun
Biblíuleg íhugun er kyrrðar- og íhugunarstund sem var vikulaga í boði síðastliðinn vetur og mun hefjast aftur þann 1. október nk. Í Biblíulegri íhugun er íhugaður einn guðspjallstexti hverju sinni og þá gjarnan komandi sunnudags – og er framkvæmdin samkvæmt hinni fornu Biblíulestraraðferð Lectio Divina/Biblíuleg íhugun. Biblíuleg íhugun fer fram á hverjum þriðjudegi kl. 18:00. Umsjón stundanna er í höndum þeirra Bergþóru Baldursdóttur og Nínu Dóru Pétursdóttur sem báðar eru messuþjónar í Víðistaðakirkju.

