Messa kl. 11:00 sunnudaginn 22. september. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur organista og sr. Sigurður Kr. Sigurðsson þjónar með aðstoð messuþjóna. Kaffi í safnaðarsalnum að messu lokinni. Verið velkomin!

Tónlistarkonan Madala sér um tónlistarflutning og sóknarprestur þjónar ásamt messuþjónum kirkjunnar. Samvera með fermingarbörnum og foreldrum í safnaðarsal á eftir. Verið velkomin!
Fjölskylduhátíð og sunnudagaskóli sunnudaginn 8. sept. kl. 11:00. Margrét Lilja Vilmundardóttir og Pétur Georg Markan sjá um stundina ásamt Helgu Þórdísi organista. Þau lofa góðri stemningu og stuði í kirkjunni. Svo verður hressing í safnaðarsalnum á eftir. Verið velkomin!
Guðsþjónusta kl. 17:00. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista og sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna. Málsverður í safnaðarheimilinu á 1.000,- kr. að messu lokinni. Verið velkomin!
Sumarnámskeið fermingarbarna hefst á sunnudaginn kemur, þann 18. ágúst og stendur yfir í 4 daga, til miðvikudagsins 21. ágúst – og er frá kl. 9:00 – 12:00 alla dagana. Sjá nánar hér.